BuzzerBeater Forums

Ísland - I.1 > season 16

season 16

Set priority
Show messages by
This Post:
00
182033.1
Date: 04/20/2011 14:37:49
Overall Posts Rated:
3737
Jæja, langar að opna svona umræðuþráð fyrir efstu deild fyrir leiktíð 16.

Ég held að það sé of snemmt að koma með spá...meira svona að spjalla um hvað menn séu að gera og staður fyrir slúður svona fyrst um sinn. Spárnar koma svo eftir 2-3 umferðir.

Tveir af nýliðinum búnir að nota bónusinn sem þeir fengu til að kaupa nýja menn. MS#1 (asnalegt að tala um sjálfan sig í þriðju persónu, en það er inni...Lebron James gerði það nú síðasta sumar) en já MS#1 fékk sér einn íslenskan monster inní teiginn og svo var van damme að fjárfesta í einum kínverskum sem á að hjálpa til við að halda teignum hreinum þar.

Það má geta þess að ég er líka að losa mig við einn mann ef ykkur langar í. sérstaklega þið sem eruð að byggja upp íslenskan hóp ;) En Tanginn viðrist vera að taka til í sínu liði. Hákon og brkan þó enn í hópnum....spurning hvað gerist þar.

Stóru fréttirnar eru kannski þær að það er brunaútsala hjá Böðvari...hvað er að gerast þar?

MM...sigurvegarnir hvað gera þeir? þeir hafa talað um að þeir þurfa að styrkja sig og svo eru þeir að leita að ungum íslendingum til að þjálfa í bakvarðastöðum.

Húnarnir...Með sinn her þarna inní, þrátt fyrir að vera búnir að vera nokkuð lengi í deildinni voru þeir klárlega spútniklið síðasta árs að komast í úrslitaleikinn en það vantar klárlega breidd í bakverðina hjá honum. hvað gerir hann í því?

Raptors...sofandi risi? hvað gerir hann?

Skytturnar,Masabas, claud hvað gera þessi lið? heldur Svalbó áfram að bæta sinn leik...unnu nú böðvar í playoffs.

Held að menn ættu að slúðra aðeins svona þegar tímabilið er að fara af stað...er það ekki málið?

This Post:
00
182033.2 in reply to 182033.1
Date: 04/20/2011 19:01:59
Overall Posts Rated:
99
Það á örugglega margt eftir að gerast á leikmannamarkaðnum, og kannski ekki endilega allt í byrjun tímabils, alltaf skemmtilegt að bæta einu skrímsli í hópinn þegar langt er liðið á tímabil til að fá smá boost fyrir úrslitakeppnina. Ég held samt að það verði engar svakalegar breytingar á toppenda deildanna.

Böðvar er náttúrulega á leið út þannig að minn aðalkeppinautur í riðlinum verður Svalbo, þeir hafa verið að bæta sig jafnt og þétt og verða örugglega hörkugóðir í ár. Sjálfur þarf ég aðeins að bæta í hópinn, veit samt ekki hvort ég eigi að stefna á meiri breidd eða hlaða í fleiri stórstjörnur. Önnur lið eru held ég aðeins á eftir, Tanginn og RR. Aðrir munu svo berjast um botninn.

Húnarnir þurfa að vanda sig til að halda sinni stöðu í hinum riðlinum, veikleikar þeirra voru afhjúpaðir nokkuð afgerandi í úrslitunum og hann mun væntanlega gera eitthvað til að styrkja sig í guard stöðunum. Ef hann gerir það verður hann helvíti illvígur. Claud verður áfram með hörkulið en aðrir munu dandalast á eftir þeim. Nýliðarnir skrapa botninn enda er helvíti erfitt að koma upp í þessa deild og ætla sér stóra hluti á fyrsta ári.

Svo verður fróðlegt hvort það verði eins og vanalega að titillinn endi í great8 eða hvort þið stubbarnir þarna hinum megin nái að landa einum.

From: Bubbi

This Post:
00
182033.3 in reply to 182033.2
Date: 04/20/2011 19:12:37
Overall Posts Rated:
44
ég ætla bara víst að halda mér uppi!

This Post:
00
182033.4 in reply to 182033.3
Date: 04/23/2011 17:24:31
Overall Posts Rated:
1717
3 af 4 nýliðunum unnu frekar gott..

L James
From: Gunni
This Post:
00
182033.5 in reply to 182033.2
Date: 04/23/2011 18:13:40
Overall Posts Rated:
11
Ég býst nú við að neðri liðin muni standa í smá leikmannabreytingum strax á meðan þeir sem hafa verið lengur í deildinni munu bíða og sjá. Ég veit nú samt ekki hvernig maður á að túlka breytingarnar hjá Böðvari, er hann að hætta eða var playoff upset'ið eitthvað sem hristi í honum og verið að taka hópinn alveg í gegn núna?

Ég veit að ég hef ekki nema 3 season núna til að fara koma mér upp leikmönnum til að skipta út fyrir núverandi stjörnu guards. En það þarf eitthvað að gerast í teignum hjá mér í vetur líka þar sem ég er með einn gamlan á ferðinni þar. MM verður að vanda annað þeirra liða sem mun toppa deildina þetta árið en ég stefni að sjálfsögðu að veita honum harða baráttu þar, stefni alltaf á að gera betur en leiktíðina á undan. Ég held svo að núna séu RR að byrja uppsveifluna sína aftur og það verður spennandi að sjá hvernig þessi leiktíð.

Húnarnir lærðu helling af úrslitakeppninni núna síðast og ég held að þeir séu búnir að spá og spögúlera í viðbótum í sitt lið til að gera það nánast ósigrandi. Claud verða nú líka á fullu spani þessa leiktíðina ásamt skyttunum. Mig langar rosalega að spá einhverjum "dark horse" í úrslita keppnina þetta árið en ég treysti mér engan veginn að segja hver það verður.

Svo a lokum verður fróðlegt hver fórnar deildinni til að höstla bikarkeppnina. :)

This Post:
00
182033.6 in reply to 182033.5
Date: 04/23/2011 19:56:37
Overall Posts Rated:
3737
Ég held að einhver af stóru köllunum taki hana þar sem að þeir hafa ekki verið sáttir með að underdog hafi unnið síðast...en þetta er bara spurning um hvernig þetta raðast upp fyrir menn.

Gaman að sjá að uppsveifla Raptors hafi byrjað á því að tapa fyrir mér :) en annars held ég að hann komi með einhverja 2 hörkuleikmenn á þessu tímabili eða því næsta...sé bara að safna. Hann ætti að fá nægan pening í kassann. Fékk yfir 20þúsund á leikinn gegn mér.

Litlu liðin hafa verið að versla og eru greinilega að koma nokkuð sterk inn...sjáum hvað það endist hjá okkur litlu köllunum. En þetta er spurning hjá stóru liðunum hvort þau kaupi sér menn til að þjálfa eins og MM hefur gert eða menn kaupi síðasta pústluspilið í lið sitt eins og Húnarnir gætu gert með því að fá sér guard sem þeim klárlega vantar.

This Post:
00
182033.7 in reply to 182033.6
Date: 04/24/2011 22:20:44
Overall Posts Rated:
11
Ég er með tvö markmið þetta tímabil, klára þjálfunina á mínum mönnum og koma mér í playoffs.
Held að baráttan mín megin verði milli Húnanna og Claud, verð að segja að ég er skíthræddur við hópinn hjá Claud en hann er með allar stöður mjög vel mannaðar.

Hinum megin hjá ykkur þá held ég að það sé engin spurning um að MM endi á toppnum nema hann vinur minn Böðvar ákveði að spila áfram og þá hef ég fulla trú á honum.


This Post:
00
182033.8 in reply to 182033.7
Date: 04/28/2011 07:50:06
Overall Posts Rated:
99
Böðvar er nú bara orðinnn Risinn Von Schrick og dvergarnir sjö. Þannig að ekki mikið að koma þaðan. Sjálfur keypti ég nýjan guard til að auka breiddina og þjálfa áfram og ætla að vinna þessa deild.

This Post:
00
182033.9 in reply to 182033.8
Date: 04/28/2011 08:41:08
Overall Posts Rated:
3737
Ég er kominn í efsta sætið og gef það sko ekki eftir!

annars fannst mér þetta nokkuð óvænt að taka svalbó sem er næst besta liðið þó þeir unnu þig í fyrsta leiknum. En það er bara gaman af svona krossvinningum.

Það má segja að með þessum kaupum þá ertu að koma upp mjög góðri breidd í liðið og það er ekki laust við það að maður myndi bara spá þér tvöföldum sigri í ár.

Hvernig meturu samt möguleika þína í B3 keppninni? ég sá að þú tapaðir með 15+ í gær.

This Post:
00
182033.10 in reply to 182033.9
Date: 04/28/2011 10:31:19
Overall Posts Rated:
99
B3 er hrikalega erfið keppni fyrir mig. Leikurinn í gær var jafn fyrstu 3 leikhlutanna, þá lenti ég undir og menn fóru að drita þriggja stiga skotum en hittu ekkert þannig að munurinn var meiri en efni stóðu til. Hefði jafnvel unnið þetta lið á heimavelli.
En ég held að ég fari nú ekkert áfram í þessari keppni, vantar sterkari guarda til að ná meiri árangri þarna, en ég er smám saman að vinna í því vandamáli.

Breiddin er líka að verða betri, get núna róterað aðeins liðinu og ætti að geta barist bæði í deild og bikar. Veit nú samt ekki um tvöfaldan sigur, það er ansi bjartsýnt. Svo eiga öll lið eftir að tapa einhverjum leikjum, 16-18 sigrar ættu að duga til að vinna riðilinn þannig að ég hef engar áhyggjur af einum tapleik gegn Svalbo á útivelli, sennilega einn erfiðasti leikurinn á tímabilinu.Ef maður fer langt í bikar getur líka verið að maður gefi einhverja leiki í deildinni til að hvíla menn o.s.frv..

From: Atli

This Post:
00
182033.11 in reply to 182033.10
Date: 04/28/2011 15:49:16
Overall Posts Rated:
11
ég er einmitt langt út fyrir mitt league þarna í B3, var að keppa við lélegasta liðið sem ég mun keppa við í gær rankað 793 og næsta fyrir neðan það er bara 200 og e-ð. Ég sé ekki fram á sigur í neinum leik tapaði í gær með 20 stigum.