Mig langar að starta smá umræðum um muninn á Great og Big.
Báði riðlar hafa sína kónga, Claud og MM sem hafa enn ekki tapað leik. En svo kemur þetta ótrúlega, Húnarnir væru í 7 sæti í Great riðlinum ef þær kæmu yfir núna. Ef við lítum á þetta þannig að deildirnar yrðu settar saman þá væru húnarnir í 8 sæti. ( þetta á ekki að hljóma sem eitthvað einelti á Húnana en þeir eru í 2 sæti big megin og fá þar af leiðandi mesta gagnrýni núna :) ) Mögulega er sú gagnrýni vegna taps í gær á móti muspelsheimi. sem vermi 7 sæti Great riðilsins.
Það er vitað að Caldera og Masabas eru að taka öllu mjög rólega þessa stundina en Great deildin er líka með bot lið þannig að munurinn á sigrum ætti nú ekki að vera svona mikill. úr leikjum gærkvöldsins þá var big riðillinn með 2 sigra og það var á bot liði Great riðilsins og svo hélt claud áfram að vinna. En nákvæmlega það sama átti sér stað í umferðinni á undan.
Því spyr ég einfaldlega, er munurinn svona mikill á milla riðla? Hvað orsakar þennan mun á milli deildanna? spilar óheppni(meiðsl) inní þetta?
Það er nú reyndar þannig að hver er sinnar gæfu smiður, hver og einn ræður hvaða taktík, hvaða leikmenn eða hversu mikið er sett í leikinn þannig að það ætti ekki að vera "afsökun" fyrir Big menn.
Annað sem ég vil benda á, er að Great er með 3 í bikarnum og Big 2 þannig að einbeitingin sem Big menn hafa kannski sett í bikarinn á kostnað deildarinnar hefur ekki skilað sér. Ef það er staðreyndin.
Great riðillinn hefur verið að jafnaði sterkari undanfarin tímabil en munurinn hefur þó aldrei verið svona mikill.
Þannig ég spyr nú bara aftur, er munurinn svona mikill á milli riðla?